Perfectó...
föstudagur, maí 28, 2004
|
Síminn Akranesi Rósa
Ég var að kaupa flugmiða til Þýskalands núna áðan og búin að þyggja erasmusstyrkinn, þannig að þetta er allt að koma og orðið frekar raunverulegt c",). Á bara eftir að borga leiguna fyrirfram og pakka niður. Ég skal segja ykkur það að jú ég er byrjuð að pæla í því hvaða flíkur ég mun taka með mér hehe...
Samstarfsmaður minn er að fara gifta sig í næsta mánuði, hún er alveg búin að gera mig bleika af öfund hehe... ég er meira að segja búin að finna brúðarkjólinn minn..... ég gat ekki valið á milli þannig að ég er með þrjá uppáhalds.
* #1
* #2
* #3
Vááá hvað það eru margir flottir ... kíkið á þá hér
miðvikudagur, maí 19, 2004
|
Nú er þrífikellan ógurlega búin að þrífa og komin með rekstrargráðu á sviði ræstitækis að hætti Ebbu og viðskipta sviðinu.
Núna er það bara helgin framundan og ég farin að plana feit! Ég sæki vinkonur mína á völlin föstudagskvöldið og þá verður rúntað um miðborg Rvk og skoða fulla fólkið. Á laugardeginum hendi ég stelpukindunum inní fjós, leyfa þeim að smella aðeins þar, eftir að hafa púðrað okkur í fjósinu kíkjum við rúnt útá Skaga og svo í Bláa Lónið. Laugardagskvöldið verður svo grilla heima hjá bróa og sturtað nokkrum ísl brennivínsstaupum í stelpurnar og svo durty weekend in Reykjavík. Á sunnudeginum tökum við svo labb niður laugarveginn, kringluna eða eitthvað annað skemmtilegt sem okkur dettur í hug. Brottför er svo kl 7am á mánudag þannig að eftir að hafa skutlað þeim aftur á völlin þarf ég að bruna útá Skaga í vinnuna c",) This weekend is gona be exelante!
Eitt að lokum, verð bara að vera hreinskilin : smelltu hér og sjáðu hvað ég vil sagt hafa!
Búin að setja myndir af Grábrókferðinni okkar Bollkotssystra kíkið endilega á þá ógurlegu ferð.
fimmtudagur, maí 06, 2004
|
Jújú núna er ég orðin Hollywoodstarna ... úfff hvað það er erfitt líf c",). hehe... Nei nei það var obboslega gaman að taka þátt í þessu þarna á þriðjudaginn. Vöknuð kl 4:20 á þriðjudagsmorgni og lagt í hann með rútu. Mættum á staðinn og fyrsti maðurinn sem maður sér er enginn annar en Jason sjálfur, ekkert smá heitur sá gutti. Hentum okkur strax í búninga og hárgreiðslu þar sem maður rakst aftur á guttann síðan var það uppí rútu og keyrt niðrá ströndina þar sem við áttum að vera fara í strandpartý. Ég fékk það hlutverk að vera á dansgólfinu og fékk líka að dansa við þennan flotta félaga ....
Núna er bara að bíða spennt til jóla og sjá frægð og frama Rósu í 0,0000005sek hehe..... Ég er að pæla í því að gefa bara fjölskyldunni bíomiða í jólagjöf c",).
sunnudagur, maí 02, 2004
|
Kalli Bjarni karlinn kom hingað föstudagskvödlið á Café Bifröst að hrista aðeins í fólkinu, það var hreint út sagt hörku stemmari á öllum. Flest allir búnir að drekkar frá sér allt vit hehe... ég náði nú samt að halda mér á temmilegu nótunum.
Kíkið bara á myndirnar hjá henni Elvu og Gonnzu, rannsakið fjörið and then you know what I mean !!
laugardagur, maí 01, 2004
|